stund milli stríðaBjörgvin Gunnarsson

jæja, er að stelast til að skrifa færslu, er að vinna en það er að verða rólegt frammi, svefngasið virkaði ágætlega á gestina en þjónarnir eru að bera þá rólega upp á herbergi.

annars er ég að koma austur núna á laugardaginn og boj ó boj, þá verður dansað í leynum!

reykjavík dagsins í dagBjörgvin Gunnarsson

shit... hef ekki bloggað í alltof langan tíma...

hér eru punktar yfir það sem hefur markvert gerst í mínu lífi nú síðkastið:

var við tökur á kvikmynd sem heitir astrópía, leik fanga sem hefur enga línu en er mikilvægur hlekkur á bakvið... vonast eftir óskarstilnefningu fyrir aukaleik.

kíkti til húsavíkur með vinnufélögum í drykkjutilgangi... ferðin var ágæt en drykkjan er eitthvað sem ég er orðinn ansi lélegur í... nenni þessu varla lengur.

tábraut mig næstum því á laugum... lifði af.

er aftur í rvk til að heimsækja kærustuna og til að leika í kvikmyndinni aftur... mæti klukkan 15 á morgun í hafnarfjörðinn.

framtíðarplön:

taka þátt í uppistandi á egilsstöðum 31 júlí ásamt jonna, hjalla og hákoni, syni mínum.

ferðast aðeins með svetlönu austur um verslunarmannahelgina.

taka við edduverðlaununum fyrir besta leik í aukahlutverkum.

reykjavík morgundagsinsBjörgvin Gunnarsson

á morgun fer ég í víking suður í reykjavík, þar mun ég drekka guðsveigar undir dillandi tónum hörpunnar þar sem 14 hreinar meyjar munu þjóna mér...

kannski ekki alveg þannig... enda hef ég ekkert að gera við svona margar hreinar meyjar, ég er hæstánægður með mína svetlönu :)

fáránlegt samt hvað það er verið að leigja mörg herbergi án sturtu í reykjavík, er virkilega einhver sem sættir sig við sturtulaust heimili?? ekkert mál að borga 300 krónur í hvert skipti sem maður vill þvo sér.

herbergi óskast í rvk!Björgvin Gunnarsson

hún svetlana mín er að leita sér í ofvæni að herbergi í reykjavík frá og með núna og til sept. ef einhver sem þetta les veit um herb. í rvk þá endilega látið mig vita í síma 8662066, bjoggi_g@hotmail.com eða í kommentakerfinu hér að neðan.

ps. það þarf að vera aðgangur að sturtu.

takk.

days of my lifeBjörgvin Gunnarsson

loksins tussast maður til að blogga!

er staddur á laugum og er að horfa á star trek enterprise á skyone... hörkufjör sem sagt.

ég vinn núna í 8 daga í röð en eftir það: partýtime!! eða minnsta kosti reykjavíkurferð þar sem ég mun hitta rússann minn, hana svetlönu sem er að koma frá rússlandi eftir alltof langan tíma. þar mun ég líka sækja um vinnu fyrir næsta vetur.

í gær varð eiturefnaslys í sundlaug eskifjarða þar sem fleiri en 30 manns voru fluttir á sjúkrahús og 14 hús rýmd... hvernig í ósköpunum er hægt að setja edik í klórtankana í staðin fyrir klór??? ég hef unnið í sundlaug og sett klór í svona tank... annað hvort var þetta allt saman ómerkt og í eins brúsum eða að þarna hafi verið á ferðinni starfsmaður sem ætti ekki að vinna með hættuleg efni.

sem betur fer fór betur en á horfði... (fáránleg setning...)

næsti vetur...Björgvin Gunnarsson

já, næsta vetur ætla ég að vinna í reykjavík og þá verður lífið víst nokkurnvegin svona: http://b2.is/?sida=tengill&id=172798


spennandi...

hæ hó og jibbí-kæ-jey-motherfucker! það er kominn 17 júní!Björgvin Gunnarsson

já, það er ekki oft sem ég er ekki heima hjá mér á héraðinu þegar þennan dag ber í garð en svoleiðis er það núna... en maður verður að gera gott úr því, ætla kannski á akureyri þar sem gunnar og felix ætla t.d. að skemmta...

fer að blogga meira rétt bráðum :)

heim í heiðardalinnBjörgvin Gunnarsson

þá er ég staddur á egilsstöðum í 18 stiga hita, reyndar er engin sól en fínt engu að síður.

var í sundi áðan með helga, finni, soffíu og pabba og var það eins og alltaf, voða næs...

það er búið að bjóða mér í partý en ég stórefast um að ég kíki... fólkið þar verður allt held ég mikið yngra en ég og ég bara kann ekki við það...

hef frekar samband við þá fáu félaga mína sem eru hér og kíki með þeim pöbbarölt... æj gleymdi því, það er bara einn bar hérna.

NattevaktenBjörgvin Gunnarsson

Jájá... er staddur á Laugum í Reykjadal þegar þetta er skrifað.

Er búinn með eina vakt sem var svo lengi að líða að skjaldbaka hefði orðið ellidauð.

Er með smá hnút í maganum varðandi vaktina í kvöld þar sem heldur hefur fjölgað í herbergjum... en það hlýtur að reddast eins og flest annað.

Í raun og veru þá dauðleiðist mér í augnablikinu... en þetta á eftir að venjast og svo kem ég alltaf heim aðra hverja viku, kem næst heim á föstudaginn, hlakka til.

Sorry fyrir þunglynda bloggfærslu en ég vil vekja athygli ykkar á því að þetta er fyrsta og jafnvel eina bloggfærslan sem er skrifuð með stórum stöfum í upphafi setninga... gaman að því.

updateBjörgvin Gunnarsson

jæja, djöfull er langt síðan maður bloggaði!

hef bara hreinlega verið of latur.

er búinn að vera á egs. í viku núna rúmlega en á morgun byrja ég í nýrri vinnu en ég verð næturvörður á fosshótelinu á laugum.

í gær keypti ég bíl sem er ansi merkilegt fyrir þá sem mig þekkja því ég kaupi aldrei neitt sem endist... en þessi bíll kostaði 500 þúsund ca, er ´99 árgerð, svartur mitzubitsi lancer og var áður í eigu guðjóns ármanns. bíllinn hefur hlotið nafnið k.k. en það er einmitt stafirnir í númerinu.

jæja, fer sennilega á ball í kvöld á eskifirði, heyrumst!

ps. sökum bílakaupsins mun ég vera á egilsst. aðra hverja viku ca í sumar, þannig að ekki gráta.

Aðalvalmynd

Textareitur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing